14. september 2026
Nýtt orlofshús að rísa í Brekkuskógi
Það er gaman að segja frá því að nýtt orlofshús er að rísa að Brekkuheiði 17 í Brekkuskógi.
Eftir að Félag stjórnenda seldi tvö eldri orlofshús í Grímsnesi, sem voru komin á viðhaldsþörf, skapaðist tækifæri til að endurnýja og styrkja orlofshúsaeign félagsins.
Við viljum leggja metnað í að hafa orlofshús félagsins í góðu ástandi og bjóða félagsmönnum upp á notalega og góða aðstöðu til að njóta þess að vera í fríi.
Nýja húsið er á lóð við hliðina á okkar eldra húsi að Brekkuheiði 15 en lóðin að Brekkuheiði 17 kom óvænt upp í hendurnar á okkur.
Við ákváðum að leita leiða til að styðja við íslenska framleiðslu og varð SG hús á Selfossi fyrir valinu til að byggja nýja húsið. SG hús byggði einnig húsið okkar að Brekkuheiði 15 sem hefur reynst okkur afar vel og hefur verið vel nýtt af félagsfólki.
Nýja húsið verður því skemmtileg viðbót við aðstöðuna í Brekkuskógi og við hlökkum til að geta tekið á móti félagsmönnum þar.
Við fylgjumst spennt með framkvæmdunum og hlökkum til að geta boðið ykkur upp á þennan nýja orlofskost seinna í vetur.
Með bestu kveðju,
stjórn Félags stjórnenda (sjá myndir ⬇️)