Starfsmenntasjóður
Einstaklingsstyrkir
Starfsmenntasjóður styrkir félaga til að sækja sér endurmenntun og efla sig í starfi.
Nánari upplýsingar um Starfsmenntunarsjóð STF og úthlutunarreglur má finna á vefsvæði sjóðsins.

Hvar sæki ég um styrki?
Sótt er um styrki á Mínum síðum. Svo umsókn sé afgreidd í lok mánaðar þarf hún að berast
ásamt öllum fylgigögnum eigi síðar en 20. þess mánaðar. Hægt er að sækja um styrki vegna verkefnis sem átti sér stað innan við 12 mánaða miðað við umsóknardag. Fylgigögnum skal skilað inn með rafrænum hætti í gegnum Mínar síður.
Þú getur séð yfirlit styrkja og stöðu umsókna á Mínum síðum.
Hvað er styrkt?
Á vefsvæði Starfsmenntasjóðs STF má finna upplýsingar um hverskonar styrkir eru í boði og
styrkupphæðir. Sjóðurinn veitir styrki til náms og einstakra námskeiða, ráðstefna, tómstunda, málþinga og fræðslu- og kynnisferða innanlands og utan. Verkefnin þurfa almennt að varða fagsvið eða starf þeirra sem sækja um eða geta orðið þeim til tekna.
Nánari upplýsingar um Starfsmenntunarsjóð STF og úthlutunarreglur má finna á vefsvæði
Hverjir eiga rétt á styrk?
Réttur félaga til úthlutunar úr sjóðunum er háður því að greitt hafi verið iðgjald í sjóðinn vegna umsækjenda í samfellt sex mánuði. Ef greiðslur eru undir lágmarksviðmiði skerðist réttur til styrkja og bóta hlutfallslega. Reglur um lágmarksgreiðslur í sjóðinn má finna í reglugerð starfsmenntasjóðs.
Ef greitt hefur verið iðgjald í sjóðinn vegna síðustu 10 ára starfsævinnar helst réttur í sjóðnum út ævina.
Fyrirtækjastyrkir
Fyrirtæki geta sótt um menntunar- og fræðslustyrki rafrænt með því að fara inn á vef Áttin - fyrirtækjastyrkir. Styrkur til fyrirtækis skerðir ekki einstaklingsstyrk félaga.
