Stjórnendanámið
Tilgangur stjórnendanáms er að miðla þekkingu og þjálfa leikni karla og kvenna millistjórnendastöðum og efla þá til að auka hæfni sína í hvers konar stjórnun. Stjórnendafræðslan er samstarfsvettvangur Samband stjórnendafélaga, Samtaka atvinnulífsins og Háskólans á Akureyri/símenntun á þessu sviði. Námsframboð Stjórnendafræðslunnar tekur tillit til þeirra fjölmörgu þátta sem verk- og stjórnendur verða að hafa við í daglegum störfum sínum. Námið er fimm lotur og hverri lotu er skipt í áfanga.

Félagsfólk Verkstjóra og stjórnendafélags Vestmannaeyja getur sótt um styrk í Starfsmenntasjóðinn fyrir allt að 80% af námsgjöldum. Sá styrkur er aðskilin styrknum úr Starfsmenntasjóðnum og hefur ekki áhrif á innistæðuna í honum.
Nánari upplýsingar má finna á vefsvæði stjórnendanámsins.