Iðgjöld og skilagreinar
Í Félagi stjórnenda eru félagsgjöld 0.7% af launum. Stéttarfélagsnúmer Félags stjórnenda er 947.
STF tekur á móti og bókar skilagreinar fyrir félagið.
Launagreiðendur eru hvattir til að nýta sér möguleika á rafrænum sendingum. Athugið að hvorki er krafist notendanafns né lykilorðs. Á almennum markaði eru mótframlög í sjóði eftirfarandi:
- Sjúkrasjóður: 1%
- Orlofssjóður: 0,25%
- Starfsmenntasjóður: 0,40%
Athugið að endurhæfingarsjóður (Framlaga atvinnurekenda er 0,10% af heildarlaunum) greiðist til viðkomandi lífeyrissjóðs. Öll gjöld skulu greiðast inn á sama reikning.
Bankareikningur : 0130-26-375
Kennitala : 680269-7699
Netfang fyrir skilagreinar : stf@stf.is
Allar upplýsingar um skil á félagsgjaldi og mótframlögum í sjóði má finna á heimasíðu STF.
- Gjalddagi og eindagi er 20. dagur næsta mánaðar eftir launamánuð.
- Kröfur stofnast í netbanka þegar skilagrein hefur verið móttekin, nema óskað hafi verið eftir öðrum greiðslumáta.
- Þau sem ekki geta skilað rafrænum skilagreinum í gegnum bókhaldskerfi geta slegið inn upplýsingar í sérútbúið rafrænt skilagreinaform fyrir innsendingar á skilagreinum.