Sjúkrasjóður STF veitir sjóðfélögum fjárhagsaðstoð vegna ólaunaðrar fjarveru frá vinnu vegna veikinda og slysa, styðja við endurhæfingu og forvarnir af ýmsum toga og koma til móts við útgjöld vegna andláts félaga.
Nánari upplýsingar um Sjúkrasjóð STF og úthlutunarreglur má finna á vefsvæði sjóðsins.
Sótt er um styrki á Mínum síðum. Svo umsókn sé afgreidd í lok mánaðar þarf hún að berast ásamt öllum fylgigögnum eigi síðar en 20. þess mánaðar. Hægt er að sækja um styrki vegna þjónustu sem veitt hefur verið innan síðustu 12 mánaða miðað við umsóknardag. Fylgigögnum skal skilað inn með rafrænum hætti í gegnum Mínar síður.
Þú getur séð yfirlit styrkja og stöðu umsókna á Mínum síðum.
Á vefsvæði Sjúkrasjóðs STF má finna upplýsingar um hverskonar styrkir eru í boði og styrkupphæðir. Styrkir eru til dæmis fyrir líkamsrækt, sálfræðikostnað, sjúkraþjálfun, fæðingarstyrk og sjúkradagpeninga.
Nánari upplýsingar um Sjúkrasjóð STF og úthlutunarreglur má finna á vefsvæði sjóðsins.
Réttur til úthlutunar úr sjóðunum er háður því að greitt hafi verið iðgjald í sjóðinn vegna umsækjenda í samfellt sex mánuði. Ef greiðslur eru undir lágmarksviðmiði skerðist réttur til styrkja og bóta hlutfallslega. Reglur um lágmarksgreiðslur í sjóðinn má finna í reglugerð sjúkrasjóðs.
Ef greitt hefur verið iðgjald í sjóðinn vegna síðustu 10 ára starfsævinnar helst réttur í sjóðnum út ævina.
