10. september 2026
Opnunardagsetningar fyrir veturinn
Opnað fyrir vetrarbókanir orlofseigna
Þann 22. september kl. 11:00 verður opnað fyrir bókanir á orlofseignum fyrir tímabilið 5. janúar til 2. júní 2027.
Fyrstu fjórar vikurnar hafa félagsmenn hvers aðildarfélags forgang að orlofseignum síns félags. Þann 20. október kl. 11:00 verður síðan opnað fyrir bókanir milli allra aðildarfélaga.
Hægt er að vera með tvær bókanir á þessu tímabili og hámarkslengd hverrar bókunar er 7 dagar. Hægt er að lengja bókun með því að bæta við dögum fyrir eða eftir helgi. Vilji félagsmaður bóka lengur en 7 daga samfellt er hægt að hafa samband við skrifstofu viðkomandi félags.
Á þessu tímabili gildir reglan fyrstur kemur, fyrstur fær og enginn punktafrádráttur er vegna bókana.
Athugið: Páskavikan er ekki innifalin í þessu tímabili. Hún fer í sérstaka úthlutun sem verður auglýst síðar.
Bókanir fara fram á Mínum síðum:
Mínar síður → Valmynd → Orlofseignir → Bókunardagatal
Best er að skoða orlofshúsin og ganga frá bókun í tölvu frekar en í síma.
