Saga Stjórnendafélag Suðurlands
Stjórnendafélag Suðurlands varð til eftir sameiningu tveggja félaga, Vörður félag stjórnenda á Suðurlandi og Þór félag stjórnenda. Á aðalfundi Varðar félags stjórnenda á Suðurlandi 15. mars 2018 var samþykkt að sameina Vörð og Þór félag stjórnenda. Þar var svo á framhaldsaðalfundi 3. maí 2018 að félögin sameinuðust í eitt félag Stjórnendafélag Suðurlands. Hér fyrir neðan má lesa sögu félaganna.
Vörður félag stjórnenda á Suðurlandi / Verkstjórafélag Suðurlands
Vörður félag stjórnenda á Suðurlandi hét áður Verkstjórafélag Suðurlands. Verkstjórafélag Suðurlands er stofnað 28 des. 1948 stofnfélagar voru 15 það gekk til liðs við Verkstjórasambandið 1949.
Fyrsti formaður þess var Jón Ingvarsson vegaverkstjóri Selfossi
Brynjólfur Melsteð Gnúpverjahreppi var formaður – 1958
Þá er Þórarinn Sigurjónsson Laugardælum formaður 1958 – 1974
Þá er Ágúst Magnússon Selfossi formaður 1974 – 1976
Sigurður Helgason Þorlákshöfn Þorlákshöfn formaður 1976 – 1978
Gunnar Ólsen Eyrabakka formaður 1978 -1982
Jón Ó Vilhjálmsson Selfossi formaður 1982 – 2014
Viðar Ástvaldsson Hellu formaður 2014 –
Fyrst sumarhús félagsins var ofanleiti í Fytjalandi Skorradal keyptur 1975 selt 1988
Hús í landi Snorrastaða við Laugarvatn var keypt 1985 og selt 2008
Þá var keypt íbúð á Akureyri að Lönguhlíð 2 keypt. 1988
Birkihlið Brekkuheið 15 var tekið í notkun 2008
Tvö hús í Borgarfirðinu komu inn með Þór félagi Stjórnendna en þau voru seld 2019
Hús félagsins í Svignaskarði var vígt í júní 2019
Verkstjórafélagið Þór
Verkstjórafélagið Þór sem er félag iðnlærðra verkstjóra í upphafi málmiðnaðarmenn og tréskipasmiðir í smiðjum og slippunum í Reykjavík en hefur nú verið útvíkkað með breyttum tímum til fleiri fagmanna.
Félagið er ekki fjölmennt hagsmunafélag en félagsmenn eru í dag um 92 talsins þar af starfandi um 63 menn. Það á sér þó langa sögu varð 80 ára 2015. Upphafið má rekja til laugardagsins 5.október 1935 Þá mættu 10 verkstjórar úr vélsmiðjunum Hamri, Héðni, Landsmiðjunni og Slippfélaginu á fund að Norðurstíg 7 í Reykjavík til þess að ræða stofnun verkstjórafélags, þetta voru Bjarni Jónsson, Árni Jónsson og Victor Strange frá Hamri, Lárensíus Rósmarsson og Benedikt Guðbjörnsson frá Stálsmiðjunni, Júlíus Nýborg og Þórður Stefánsson frá Slippfélaginu í Reykjavík, Guðmundur Runólfsson, Ágúst Brynjólfsson og Einar Bjarnason frá Landssmiðjunni og Guðfinnur Þorbjörnsson frá Vélsmiðjunni Héðni.
Eftir nokkrar umræður var samþykkt að stofna félag og kosin var fjögurra manna nefnd til að gera uppkast að lögum fyrir félagið og undirbúa stofnfund. Í nefndina voru kosnir þeir Bjarni Jónsson, Guðmundur Runólfsson, Júlíus Nýborg og Guðfinnur Þorbjörnsson. Nefndin kom saman 12.október á sama stað og var Bjarni þá kosinn formaður nefndarinnar og Guðfinnur ritari. Eftir það hélt nefndin tvo fundi og lagði drög að lögum í 15 greinum og ákvað stofnfundardag.
Það var svo laugardagurinn 2.nóvember 1935 klukkan 5:30 eftir miðdegi að stofnfundur Þórs var settur í Oddfellowhúsinu í Reykjavík. Fundarstjóri var Bjarni Jónsson og ritari Guðbjörn Þorbjörnsson.
Í fundargerðarbók segir meðal annars: Mættir voru á fundinum 10 manns, þeir sömu og á undirbúningsfundinum að Bjarna Guðbjörnssyni undanskildum,sem var ekki í bænum. Einar Bjarnason kvaddi sér hljóðs eftir að lesin hafði verið upp fundargerð nefndarinnar og lagauppkast. Sagði hann að sér fyndist hann ekki eiga heima í þessum félagsskap, hann væri ekki verkstjóri nema að nafninu til og hefði allt aðra lífsskoðun en þá er virtist ætla að verða ríkjandi í félaginu. Vildi hann að minnsta kosti ekki fallast á tvær lagagreinar þar sem ákvæði voru um að félagsmenn mættu ekki vera í Sveinafélagi járniðnaðarmanna.
Vakti þetta undrun annara fundarmanna sem vísuðu til fyrri samþykktar Einars um að stofna félagið. Endaði þetta orðaskak með því að Einar gekk af fundi eftir að samþykkt var tillaga Guðfinns Þorbjörnssonar um að þeir sem ekki væru fullkomlega vissir um að vera með í stofnun félagsins,íhuguðu málið í næði áður en þeir óskuðu inngöngu. Eftir þetta var haldið áfram að ræða lög félagsins sem síðan voru samþykkt og þessir kosnir í stjórn:
Formaður Bjarni Jónsson, Ritari Guðfinnur Þorbjörnsson, Gjaldkeri Guðmundur Runólfsson, Varamenn Árni Jónsson og Þórður Stefánsson, Endurskoðendur Victor Strange og Júlíus Nyborg.
Á þessum fyrsta fundi var strax kosin nefnd til að athuga ráðningarkjör félagsmanna og undirbúa gerð kaupsamnings við vinnuveitendur. Fundað var nokkrum sinnum í framhaldinu og teknir inn nýjir félagsmenn. Samningamálin voru ofarlega á baugi en ekki voru allir sammála um þau mál. Á fjórða fundi í félaginu 3.mars 1936 var lagt fram uppkast nefndar að samningi við vinnuveitendur. Andmælti Ágúst Brynjólfsson því uppkasti og sagði að betra væri að hafa engan samning. Sagðist hann alltaf hafa verið á móti því að gera samning við Vinnuveitendafélagið og einungis viljað samning við verkstæðin. Guðmundur Runólfsson andmælti einnig samningsuppkastinu. Að lokum var það þó samþykkt með nokkrum breytingum og töldu sumir það mikils virði að með slíkum samningi myndi Vinnuveitendafélag Íslands formlega viðurkenna Verkstjórafélagið Þór og þar með flestir verkstæðiseigendur líka.. Samningamálin voru áfram rædd á fundi í félaginu 5.mai 1936 þar kom fram breytingartillaga sem var felld og upphófust þá heitar umræður og þrætur sem ekki var unnt að bóka eins og stendur í fundargerð. Eftir þetta varð félagið óstarfhæft og enginn fundur skráður í félaginu um árabil.
Þann 25.febrúar 1942 er ritað í fundargerðarbók Verkstjórafélagsins Þórs að nokkrir verkstjórar í járn- og skipasmíðaiðnaði hafi komið saman í húsi Slippfélagsins til fundar enn á ný til að ræða stofnun félags. Voru það að hluta sömu aðilar og stofnað höfðu Þór í upphafi. Var samþykkt á þessum fundi að endurreisa Þór, en skoðaðnaskipti urðu um samvinnu við sveina í sömu iðngreinum. Ekki náðist fram að félagar í Þór fengju að halda réttindum sínum með aðgengi að sjóðum í sveinafélaginu. Kosin var nefnd á þessum fundi til að fara yfir lög Verkstjórafélagins Þórs. Þann 16 mars 1942 var haldinn aðalfundur þar sem breytt lög félagsins voru samþykkt og fyrsta stjórn eftir endurreisn félagsins var kosin:
Formaður Páll Pálsson, Ritari Gísli G. Guðlaugsson, Gjaldkeri Þórður Stefánsson, Varaformaður Dýri Baldvinsson, Varastjórnandi Anton Jónsson.
Á fundi í félaginu 9 apríl 1942 kemur fram að samningsdrög hafi verið lögð fyrir atvinnurekendur á tveimur fundum þann sama dag. Enginn árangur varð af fyrri fundinum, en á seinni fundinum féllust atvinnurekendur á að greiða verkstjórum eftir- og næturvinnu sem áður hafði ekki verið gert nema í einstaka tilfellum. Buðust atvinnurekendur til að greiða undirverkstjórum í grunnkaup 4 krónur í eftirvinnu og 5,64 í næturvinnu. Yfirverkstjórum skyldi greiddar 4,50 krónur í eftirvinnu og 6 krónur í næturvinnu.
Haustið 1942 náði Félag járniðnaðarmanna samningum um 45% hækkun á dagvinnukaupi á meðan laun verkstjóra stóðu í stað. Á fundi samninganefndar Verkstjórafélagsins Þórs með framkvæmdastjórum smiðjanna 15.september 1942 náðu verkstjórar samningum um hækkun grunnlauna sem ákveðin voru 217,75 krónur á viku með fullum vísitölubótum að viðbættum yfirvinnuhækkunum. Þá náðu þeir fram þriggja mánaða uppsagnarfresti og 14 daga sumarfríi á launum. Í veikinda- og slysatilfellum skyldu atvinnurekendur greiða allt að þriggja mánaða laun auk lækniskostnaðar. Þessi samningur er talinn vera fyrsti samningur íslenskra verkstjóra sem ber nafn með rentu.
ÞÓR stofnaði sjúkrasjóð fyrir sína félaga sem var lagður niður 1983 og gengið inn í sjóð Verkstjórasambandsins. ÞÓR stofnaði 1959 lífeyrissjóð sem Lífeyrissjóðurinn Skjöldur hélt utan um.
Verkstjórafélagið ÞÓR fór með samningsumboð fyrir iðnlærða verkstjóra allt til ársins 1978 en þá gekk félagið í VSÍ (síðar VSSÍ/STF) samtök verkstjórafélaga, en fulltrúi frá ÞÓR átti síðan fast sæti í samninganefnd VSÍ eða allt þangað til að því sæti var fórnað á pólitísku altari innan VSSÍ.
Helstu verkefni í gegnum tíðina og hvati að stofnun félagsins var að leggja fram kjarakröfur og leita samninga við atvinnurekendur. Staðan í dag er sú að mikil áhersla er lögð á menntunarmál og jafnvel rætt um sérmenntun verkstjóra. Einnig eru endurmenntunarmál ofarlega á baugi sem og öryggismál. Félagið á og rekur tvö sumarhús í landi Svartagils í Borgarfirði sem hafa verið mjög vel nýtt.
Töluverður kraftur er í félaginu og annast félagsmenn meðal annars viðhald á sumarhúsunum í sjálfboðavinnu,enda hæg heimatökin hjá faglærðum iðnaðarmönnum.
Skipasmíðaiðnaður hér á landi er ekki svipur hjá sjón frá því sem áður var. Þetta hefur leitt af sér talsvert færri atvinnutækifæri fyrir iðnmenntaða málmiðnaðarmenn og ekki síður tréskipasmiði. Nýsmíði skipa er nær engin og fátt annað en viðhald er eftir á því sviði. Iðnaðarmenn í þessum geira hafa því leitað á önnur mið og smiðjurnar sömuleiðis. Framtíðarsýn félagsmanna er eigi síður sú að félagið verði áfram öflugt félag iðnlærðra verkstjóra. Þrátt fyrir að félagið sé fámennt þá er sterkur vilji innan félagsins að auka félagatöluna og halda sjálfstæði Þórs sem hagsmunafélags iðnlærðra verkstjóra.
Á aðalfundi félagsins 2009 kom fram að tvö verkstjórafélög óskuðu eftir því við stjórn að félagið sameinaðist öðru hvoru þeirra, þetta var fellt einróma af fundarmönnum. En þeirri stjórn sem þá tók við fannst í framhaldi af þessu að eitthvað yrði að gera til að efla og styrkja félagið því fækkun á félögum hafði orðið á milli nokkurra síðustu ára og erfitt að manna stjórn. Því voru boðaðir 8 einstaklingar úr félaginu til vinnufundar þar sem lagst var yfir stöðuna og reynt að finna leiðir til framtíðaruppbyggingar. Niðurstaðan af þeim fundum var sú að leggja til við aðalfund 2010 að nafni félagsins yrði breytt og félagið nefnt ÞÓR félag stjórnenda, og að orðið iðnlærðir yrði tekið út. Aðalfundur samþykkti þessar breytingar einróm þar sem þetta opnaði fyrir aukinn félagamarkað og gæti orðið til þess að yngri aðilar gengju til liðs við félagið því hlutfall aldraðra félaga er orðið nokkuð hátt. Það er skemmst frá því að segja að ekki varð árangur eftir væntingum þó ýmislegt fleira væri gert til að laða að nýja félaga svo sem að setja á stofn sjóð til heilsueflingar og að mæta félögunum með menntastyrkjum í viðbót við þá sem koma úr sameiginlegum sjóðum STF.
Stjórn STF (áður VSSÍ) hefur unnið ötulega að því að koma verkstjóra- og stjórnenda félögunum á framfæri í þeirri von að fjölga megi félögum, nokkur árangur hefur náðst með aukinni áherslu á kynningarmál, einnig hefur verið umræða um fækkun aðildarfélaga og þá í formi sameininga minni félaga en víða hjá “litlu” félögunum gætir þess sama þ.e. að erfitt er að manna stjórnir og halda úti þjónustu fyrir félagsmenn.
Jón Erlendsson formaður ÞÓRS til margra ára sagði alltaf að félagið mætti aldrei sleppa sæti sínu í samninganefndinni það væri líftaug félagsins og má kannski segja að hnignun ÞÓRS hæfist þegar því sæti var sleppt, en reynsla síðari tíma er að hin Verkstjóra- og Stjórnendafélögin hafa ekki gert greinarmun á iðnlærðum og öðrum stjórnendum þó svo að ÞÓR hafi eingöngu tekið inn faglærða þangað til allra síðustu ár þegar gerð var tilraun til að efla félagið með öllum ráðum.
Niðurstaðan af þeirri vinnu og tilraunum til eflingar ÞÓRS varð sú að þáverandi formaður Ægir Björgvinsson í samráði við aðra í stjórn lagði til á aðalfundi félagsins 2017 að félagið leitaði til annarra aðildarfélaga STF um sameiningu, þetta samþykkti aðalfundurinn og gaf stjórninni umboð til að ræða við tvö Verkstjóra- og Stjórnendafélög og voru þrír stjórnarmenn kosnir í nefnd til að fylgja þessari samþykkt eftir.
Skemmst er frá að segja að ekki náðist samkomulag um sameiningu við Verkstjóra og Stjórnendafélag Hafnarfjarðar en Vörður Félag Stjórnenda á Suðurlandi tók vel í hugmynd um sameiningu því var samþykkt á aðalfundi ÞÓRS 2017 að sameinast þeim, og var sameining staðfest af báðum félögunum á aðalfundum og framhalds aðalfundum þeirra 2018 undir nýju merki og nafninu Stjórnendafélag Suðurlands.
Félagar sem haf setið í stjórn STF fyrir hönd ÞÓRS hin síðari ár eru:
Jón Erlendsson í stjórn STF
Snorri Guðmundsson í stjórn STF sem varaforseti
Haukur Júlíusson skoðunarmaður reikninga
Ægir Björgvinsson í stjórn STF sem ritari
Rúrik Lyngberg Birgisson skoðunarmaður reikninga
Eflaust hafa fleiri setið í stjórn eða tekið þátt í starfi Sambandsins en ekki eru upplýsingar til um fleiri svo vitað sé, því eru ábendingar vel þegnar.
(Þessar upplýsingar eru fengnar af heimasíðu ÞÓRS (vefthor@gmail.com) og ýmsum ótilgreindum gögnum en skráð af Ægi Björgvinssyni.) (nóvember 2020 ÆB)